sæææælar

bjössi

06.12.2006 18:59:36 / Björn Bústólpi

aaaaaheeeeldég

ég vann geisladisk í útvarpinu um daginn.  Alltaf gaman að vera í útvarpinu.  Ég gæti vel hugsað mér að starfa í útvarpi. 

Já góðan og blessaðan, velkomin í morgunstund á hjara veraldar.  Í þættinum í dag munum við fá góða gesti.  Birkir Jón og Ögmundur munu koma og etja kappi í kappræðum.  Umræðuefnið verður "geta alþingismenn haft raunveruleg áhrif".. Ögmundur mun að sjálfsögðu styðja en Birkir Jón verður á móti.  

Hvað er með þennan Venna Páer??
 
Ég ætla að gefa þessu aðeins meiri séns á næstunni því ég á það soldið til að afskrifa hluti á núinu.

Æi í alvöru talað.. þetta er nú meira djókið þessir þættir.  Mér finnst það leiðinlegt að segja það, en það er svo mikill sveitabragur af honum að það mætti halda að hann tæki alvöru hestamykju í nefið.

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 19:04:20 / Björn Bústólpi

gaman á alþingi

mér er huggun að því að menn hafi gaman á Alþingi.   Í fréttum voru menn í bakföllum yfir ræðum um landnámshænsni, það er gott að skattpéningar mínir fari í að borga mönnum fyrir að grína á Alþingi.  Legg ég til að Siggi Kári fái meira en hinir og hann verði valin svona bekkjaráðsmaður og sjái um skemmtikvöld og bjórkvöld og svona.  Svo getur Ögmundur fyndni verið með eftirhermur.  Hann gæti til dæmis hermt eftir formanni bsrb.

Svo finnst mér að það mætti setja á fót svona hægferðarbekk fyrir slúbbertana.  Það væri kannski erfitt, því það gera nú margir tilkall til að komast þar inn.

Með þessum ummælum mun hefur þessi síða nú tyllt sér á pall með harðyrtum pólitískum síðum.

Hvenær ætlar Össur eiginlega að raka þetta skegg.  Og er Birki Jón alvara ?  Með hvað spyrjið þið.  Nú, með það að hann sé svona mikill bavíani.

Búja!

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 11:57:39 / Björn Bústólpi

lönsblogg

sælar!

Gríðarlegur stemmari hérna í Jónum.  Fólk sem ég hef verið að senda tölvupóst úr vinnunni, það er fólk sem tengist ekki vinnunni og tölvupósta sem ég hef verið að senda sem varða persónuleg málefni, hefur gert gys að mér og mínum vinnuveitendum að það sé steikt að titla alla starfsmenn fyrirtækisins með millinafninu "jón". 

Skiljiði, eins og allir sem vinna hjá Jónum heiti virkilega Jón.  Þetta er kannski halló (hadló), en líka ákveðið trix sem fær þetta ákveðna atriði til að festast í hausnum á fólki, altso Jón og Jónar. 

Jæja, þetta var nú skemmtilegt blogg, ákvað bara svona að tjá mig aðeins um vinnuna, geri það kannski ekki aftur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 17:55:00 / Björn Bústólpi

sælir

jú sælir.

Í dag er ég lasinn heima.  Er með hálsbólgu.  Ég veit eiginlega ekki hvað ég get sagt um þá staðreynd að ég hef ekki verið nægilega duglegur að setja eitthvað á þetta blog.
En vonandi mun ástandið batna, ég mun allavegana reyna.

Í gær var stemming hjá mér.  Meistaradeildin var í sjónvarpinu og ég horfði á barca chelsea og liverpool bordeuax (eða hvernig sem það er skrifað!)  Ba-Ch leikurinn var frábær skemmtun, en Barca hefði mátt taka þetta. 

Tók einhver eftir því þegar Arnar Björnsson sagði frá að hann hefði verið að sörfa á netinu og klikkað á link þar sem mátti sjá kærustu Ronaldinhos?  Ja, kallið mig furðulegan en málið er að Arnar sagði í beinni útsendingu að eftir að hann hafi klikkað á linkinn hafi argasta klám poppað upp á skjáinn hjá honum.  Segir maður frá svona hlutum þegar maður er að lýsa knattspyrnuleik í beinni útsendingur.  Maður spyr sig?!



» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 14:09:15 / Björn Bústólpi

27 ágúst.

Þann 27 sept, um ca miðjan dag steig ég upp í flugvél Iceland Express á leið til Alicante.  Flugið gekk áreynslulaust fyrir sig og vélin lenti heilu og höldnu um tíuleytið.  Í flugstöðinni í Alicante sá ég stúlku sem ég kannaðist við úr næturlífi Reykjavíkurborgar, ég hafði einhverntíma spjallað við hana á Kúltur og vissi að hún var spænsk.  Ég gaf mig á tal við hana og í ljós kom að hún var að fara í rútu til Madridar og svo skemmtilega vildi til að ég ætlaði að taka leigubíl á gistiheimilið mitt sem var akkúrat við hliðina á Rútustöðinni í Alicante.  Á rútustöðinni fékk hún að vita að næsta rúta legði af stað til Madridar eftir 3 tíma þannig að við ákváðum að kíkja á helstu staðina.  Kebabstaðinn, hobbitabarinn og svo löbbuðum við í gegnum höfnina þar sem dúndrandi klúbbatónlist ómaði allt í kring.

Að lokum fór hún upp í rútu og ég að sofa í huggulegu herbergi á hostal Portugal.

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 15:37:55 / Björn Bústólpi

um líðandi stund

Ég býst við að ég sé týpan sem lifir fyrir líðandi stund, andstætt þeirri sem lifir fyrir komandi tíma. 

Hvernig eru þessar týpur sem eru alltaf að spara og spara sig?  Fólk sem kaupir pepsí og drekkur pepsí í staðinn fyrir kók. 

Er kominn tími á að gerast hin týpan?  Hætta að fara á skemmtistaði eins og Moli í Sódómu.  Setjast frekar niður með góða bók? 

Sunnudaginn 27 sept fer ég til spánar og síðan lítur þetta svona út:

Ryan Air 9182
Barcelona (Girona)  Spain to Rome Italy
Saturday Sep 2 8:50/10:20

Sky Europe 2367
Milan-Bergamo Italy to Prague Czech Republic
Friday Sep 8 20:00/21:25

Condor DE835
Prague to Munich Germany
Monday Sep 11 8:00/9:00
Munich to Prague
Tuesday Sep 12 6:20/7:20

Sky Europe 2200
Prague to Split Croatia
Tuesday Sep 12 11:50/13:25

Norwegian DY1907
Dubrovnik Croatia to Oslo (Gardermoen) Norway
Saturday Sep 16 20:25/23:35

Iceland Express
Copenhagen Denmark to Reykjavik Iceland
Wed Sep 20 13:15/14:35

BH


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 17:22:35 / Björn Bústólpi

sælir

Sælir!

Ákvað að taka lappirnar á þetta áðan og labba í búðina sökum matarleysis í ískápnum. Ég byrjaði að labba niður Grandaveginn og tók stefnuna á Nóatún eins og svo oft áður. En þá datt mér í hug að fara frekar í Krónuna, enda ekki langt undan.

Í stað þess að labba niður Framnesveginn hélt ég áfram Grandaveginn niður að sjó. Svo fór ég til hægri og labbaði smáspöl þar til ég kom í Krónuna. Að vísu hefði ég getað farið niður Framnesveginn og farið inn í Nóatún og í gegnum búðina, út hinum megin þar sem bílaportið er og svo inn í Krónuna, en ég fattaði það ekki fyrr en ég var eiginlega kominn niður að sjónum hjá Grandavegnum.

Anyways, innkauplistinn hljóðaði svo:
iceberg haus, léttmjólk 1L, 1 paprika, franskar, smurostur, fimm pulsur, 2 hvítlauksbrauð, 2 tómatar, 1 rauðlaukur, 5 pylsubrauð, 2 kaffijógúrt og 2 L kók.

Þetta hefði kostað svona 35.000 í nóatún en í Krónunni aðeins 1586 kr.

Maður kann að kaupí matinn.

Á bakaleiðinni tók ég náttúrlega í gegnum Nóatún rúntinn, en ég get ekki neitað því að mér leið eins og hálfgerðum svikara að labba með Krónupoka í gegnum Nóatún.  Þetta var svona eins og kassastelpurnar gjóuðu augunum á mig og horfðu svo hvor á aðra með svipnum: "Sjáðu þennan, kaldur haa, labbar hérna inn eins og ekkert sé með Krónupoka.  Heldur hann að við við séum hérna bara svo að hann geti labbað í gegn, ótrúlegt hvernig fólk er nú til dags!"


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 13:04:46 / Björn Bústólpi

sæææliir

ávallt sposkur

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 17:54:22 / Björn Bústólpi

Loftur

Er það skemmtileg tilviljun eða upphugsað ráðabrugg almættisins að formaður sambands flugumferðastjóra heitir Loftur?  Maður spyr sig. 

En Sigurrós er með tónleika í kvöld og ætli maður kíki ekki, það verður kannski fínt að slappa af þarna, þyrfti helst að finna rauðvín svo maður geti strappað sig niður eftir átök helgarinnar.  Annars er ég alls ekki Sigurrósar aðdáandi.  Fílaði hreinlega ekki tónlistina sem þeir buðu upp á höllinni um daginn. En maður má ekki vera neikvæður.  Hananú.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 18:00:29 / Björn Bústólpi

þaaaeeeeldég

Hljómsveitin snooze, eða eða squeeze eða eitthvað með brynjari rappara af fm og eurovision, og kærustunni hans, fótboltastelpu úr val, eru með hresst lag í spilun sem heitir förum alla leið.  Fólk ætti að hafa séð þetta á popptívi eða sirkus upp á síðkastið.  Pínu bjánahrollur sem fylgir þessu.  Eflaust ágætis fólk og allt það en hversu töff er að vera að súpa á skyri í miðju djammi til að fá spons.  Jájá, fáum gellur til að spila fótbolta við einhverja lúðastráka í sporthúsinu og látum strákana tapa.  jájá.. bara svona að spá í þessu.



» 1 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 15:49:34 / Björn Bústólpi

um gúrkutíð

Það hefur einhverra hluta vegna verið lítil löngun í það að punkta niður sniðugar glósur og láta gamminn geysa á síðum alnetsins upp á síðkastið.  Einu sinni stóð til að vera með veitingahúsagagnrýni hér á þessari síðu svo og menningarhornið.  Ekki það að það sé hrikalega frumlegt eða þess háttar, dr. Gunni er með þetta hjá sér og mér fannst það sniðugt.  Ætlaði sko að komast að því hvar væru ætilegar pulsur og hvar mætti alls ekki biðja um pullu vegna ofsoðningar eða vansoðningar.  Það er held ég ekki spurning að á Bæjarins Bestu eru hreinlega bestu pulsurnar.  Einnig stóð til að í menningarhorninu myndi maður lýsa yfir skoðunum og rýna til gagns þá útgáfu sem fellur til, svo sem tónlist og bækur og eitthvað í þeim dúr.  Maður er nú ekki beint týpan í að taka eina bók á mánuði, þetta stoppar alltaf eftir ákveðnar margar blaðsíður og svo liggur þetta í rúminu eða við hliðina á baðkarinu og safnar ryki.  Tók síðast Angels and Demons, klisja, ég veit, en hún hélt manni við efnið, annað en Þetta er allt að koma eftir Hallgrím sem er ekki nógu skemmtileg þó hann sé lúnkinn í orðaleikjum og býsna sniðugur en ekki nógu sniðugur.  Nýja Neil Young platan olli mér talsverðum vonbrigðum til að byrja með en eins og flestar plötur sem lifa þá stimplar þessi sig inn eftir nokkuð margar hlustanir.  Annars er gamli Neil Young alltaf bestur, altso gamalt stöff með Neil.

Jæja ég má ekkert vera að þessu.  BH


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 12:52:05 / Björn Bústólpi

Költ

Költ hefur löngum verið mitt millinafn.  Ég átti svaðalegan leddara fyrir mörgum árum og mér finnst gaman að cult-senunni, ef segja mætti svo. 

En hvað er költ.  Költ er vissulega eitthvað sem er öðruvísi, brýtur upp normið og hrífur fólk vegna óvenjuleika síns.  Til dæmis má nefna kvikmyndina A Clockwork Orange.  Hún var ekki með "venjulegum" söguþræði, né innihélt "venjulega" karaktera. 

Þið hugsið kannski að þetta sé klisja að vera að ræða þetta en ég stend fastur við minn keip.

Að vera í fríkuðum fötum getur þess vegna verið költ, en það hlýtur bara að vera költ ef enginn annar er í fríkuðum fötum.  Heldur er ekkert költ ef maður er í fríkuðum fötum bara til að líkjast einhverjum eightís gæja, eins og boy george, eða eitthvað álíka. 

Ef maður vill virkilega vera költ, sé maður allsber.

F. Nietzche.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 12:44:39 / Björn Bústólpi

Daginn daginn!

Jæja, blautt úti og skýjað, ekta leiðindaveður.  En þá getur maður bara verið sáttur að hanga í vinnunni, nú eða heima og horfa á fótbolta.  Klikkaði á að veðja eða koma með einhverja spá fyrir mótið en ég held eiginlega með Brössum  (ég veit, klisja, en það er bara ekki hægt annað.  Svo held ég með Spánverjum, held að Fernando Torres eigi eftir að setja nokkur, og David Villa líka, Raúl er náttúrlega útbrunnin senjór. 

England eiga eftir að drulla upp á bak þar sem managerinn er sænsk grýla sem hugsar ekki um annað en að bomba einkaritara sína.

Er búinn að bóka flug til Alicante í lok ágúst og mun fara á tómatfestival í Bruno, þar sem allir dúndra tómötum út og suður og bærinn er undirlagður í gumsi.  Næst verður farið á running of the bulls í Pamplona, ef ég þori.

Seinna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 14:25:49 / Björn Bústólpi

Miðvikudagslistinn - frí á miðvikudögum

Eftir að hafa staðið í ströngu í kosningaslagnum undanfarið, hefur máttur M - listans oxið gríðarlega og má heyra ungabörn í kerrum æpa slagorð flokksins.



Nú í kvöld fer fram forkeppni evróvision, en þar mun ein dygg M listakona koma fram fyrir Íslands hönd. M listinn er alls staðar.



Þaaaheeeldég. Eftir að Ágústa Eva hætti með Frosta í Mínus, fór hún á djammið á þriðjudegi. Henni þótti nú óþægilegt að fara á þessa helstu skemmtistaði í miðbænum sökum gríðarlegrar frægðar þannig að stúlkan mætti á heimavöll M listans, nebbninlega Ölver í Glæsibæ.



Þar hitti hún fyrir ritara flokksin og áróðursmeistara, Sverrir "Flipa" Arnarson. Þau tóku spjall saman og kynnti Sverrir fyrir Ágústu hugmyndafræði M - listans. Hún var strax hrifin, en spurningin er bara hvort hreif hana á undan, byltingarkenndar hugsjónir M listans, eða persónutöfrar Sverris.



Nú fer hver að verða síðastur til að hlaupa til og taka þátt í merkustu fæðingu stjórnmálaafls síðan Ástþór mætti útataður í tómatsósu í hæstarétt.



X M. Lifið heil.

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 23:33:10 / Björn Bústólpi

Liðstyrkur

M lista appelsínugulra hefur bæst gríðarlegur liðstyrkur fyrir komandi átök.

Eyþór Arnalds, sellóleikari og alkóhólisti, hefur ákveðið að sínum markmiðum verði helst náð með því að ganga til liðs við Miðvikudagslistann. Eyþór hefur löngum verið öflugur á djamminu og setti hann punktinn yfir i-ið þegar hann svo stórglæsilega valtaði yfir ljósastaur á sæbrautinni og stakk svo af.

Við fögnum inngöngu Eyþórs í Miðvikudagslistann.

Við hörmum hins vegar þær staðreyndavillur sem birst hafa í fjölmiðlum þess efnis að Eyþór ætli í meðferð. Eyþór tjáði mér sjálfur að hann myndi haldast vel rakur fram yfir kosningar.

Áfram Eyþór!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13